Blöðrudýr fyrir leikskóla
Vantar ykkur skemmtun fyrir sumarhátíð leikskóla?
Við hjá Blaðraranum sérhæfum okkur í að gera viðburði eins og sumarhátíðir leikskóla enn eftirminnilegri. Við höfum mætt í fjölda leikskóla og erum með sérstakt prógram fyrir það þar sem við höfum spjald með sex einföldum blöðrudýrum svo að þau geti valið sér það sem þau vilja og röðin gengur hratt fyrir sig :)
Með blöðrudýrunum erum við líka með grín og glens, þannig að það sé upplifun að sjá blöðrudýrin verða til fyrir framan sig.
Gott er að bóka fyrir sumarhátíðir tímalega þar sem þetta er tímabilið þar sem er mest að gera hjá okkur, þú getur sent fyrirspurn með forminu hér að neðan.

Verðið fer eftir því hvað þig vantar marga blaðrara og hversu lengi.
Hver blaðrari kostar 30 þúsund krónur á hvern klukkutíma og við getum hjálpað þér að finna hvað passar fyrir þinn viðburð!

Sló í gegn í 10 ára afmæli, frábær skemmtun fyrir alla sem fylgjast með!

Frábær Blaðrari sem vakti mikla lukku í afmæli – fær okkar bestu meðmæli – klár og skemmtilegur.

Börnin elskuðu hann! Afskaplega ljúfur og skemmtilegur!

Vorum rosa ánægð og börnin sömuleiðis. Mæli með þeim.





